mánudagur, júlí 03, 2006



Smá ferðalag...

Ég ætla að færa mig yfir á www.123.is/ester í alla vega mánuð.
Langar að prófa það. Ef mér líkar ekki nógu vel kem ég aftur hingað.

Þið vitið hvar þið finnið mig.
Kv. Ester


Ester ritar@ mánudagur, júlí 03, 2006

|


fimmtudagur, júní 29, 2006



Vandamál - Smandamál

Ég er hinn mesti snillingur í að gera vandamál úr engu. Svo dæmi sé tekið að þá hef ég gert hið rosalegasta vandamál úr því hvort ég eigi að skella mér á Landsmót hestamanna núna um helgina eða ekki.

Gaman að segja frá því...

EM


Ester ritar@ fimmtudagur, júní 29, 2006

|


þriðjudagur, júní 27, 2006



Maður svíkur ekki loforð vísvitandi er það !?!

Ég lofaði Önnu Heiðrúnu fyrr í kvöld að ég skyldi blogga svona til tilbreytingar. Málið er ekki að ég nenni því ekki... heldur gleymi ég því. Held því samt alltaf statt og stöðugt fram að um leið og læri heimasíðugerð og kemst á eigin svæði að þá mun ég afreka mun meira í þessum efnum.

En út í aðra sálma. Anna mín heimtaði reyndar ferðasögu, en þar sem hún er nú ekkert svona sérstaklega krassandi að þá ælta ég bara að hlaupa yfir þetta á aðalatriðum.

Við hjónaleysið skruppum s.s. á dögunum til Svíþjóðar og Danmerkur. Aðal ástæða ferðarinnar var fertugsafæmli hjá honum Anís, en hann varð einmitt 40 ára núna 15. júní síðastliðinn. En það var s.s. fjölmennt frá Íslandi í veisluna og haft mikið gaman. Systir mín og fjölsk. búa í Ingered sem er afskaplega lítill og rólegur bær tengdur Ålingsås sem er ca. 30 mín ferðalag með lest frá Gautaborg. Þar var dundað sér í göngutúrum, siglingum og svamli í vatninu í nokkra daga. Einnig fórum við í Lisegarden, Tivolíið í Gautaborg og skoðuðum svo borgina aðeins.
Eftir 5 daga í Svíjalandinu tókum við svo rútu frá Gautaborg yfir til Kaupmannahafnar og stoppuðum þar í 3 daga. Fórum í dýragarðinn, siglingu um "sýkin" og drukkum bjór á Strikinu. Þetta var allt saman voðalega notalegt og gott. Ég var ekki alveg tilbúin til að fara aftur heim. En svona er þetta bara. Adam var ekki lengi í paradís!

Þetta var nú frekar súr saga, enda kannski ekkert mikið merkilegt að segja frá. Meira svona notalegar fjölskyldustundir og dásamleg rólegheit. Alla vega þá eru systur-synir mínir alltaf jafn frábærir. Sá yngsti ný kominn á lappirnar og hleypur eins og skriðdreki um allt. Sá elsti orðinn allt of fullorðinn ;-) og Sindri í miðið stækkar allt of hratt. Kannski er þetta vegna þess að maður sér þá svona sjaldan þessar elskur að manni finnst maður vera að missa af þeim. En alla vega fyrir fjölskyldur og tengda aðila ætla ég að skella slóð á síðunna þeirra hérna til gamans: www.barnanet.is/aprildrengir Svo þarf ég nú að skreppa aftur í október, en mín kæra systir og mágur eiga einmitt vona á sínum fjórða dreng (eða það segi ég að minnsta kosti) um mánaðarmótin sept/okt. Þvílíkur dugnaður í þessu fólki. Ýmsir ættu nú að taka sér þetta til fyrirmyndar ;-)

Framundan er svo bara vinna, mér til mikillar mæðu. En maður reynir að hamast við að nýta helgarnar vel. T.d. skreppa í útilegur, heimsækja vini og vandamenn um allt land, hjóla af sér slenið (nota bene - á nýja hjólinu mínu) og fá fólk í heimsókn. Eða eitthvað bara... alla vega fyrir mestu að nota sumarið vel, hvað sem maður kann að eyða því í ! Kannski ég noti eina helgina í það að hjóla upp í Borgarnes. Æ Ester þeg... ekki orð um það meir, þetta var léleg hugmynd.
Núna ætla ég aftur á móti að fara að sofa, en áður en ég hætti langar mig að spurja ykkur hvort þið hafið horft á fræðsluþáttinn í ríkissjónvarpinu í kvöld. Hann heitir "leyndarmál kynjanna" og fjallar um þann grundvallar mun sem er á körlum og konum. Þetta var hluti I af þremur og var farið í muninn á heilastarfssemi kynjanna. Áframhald verður næstu tvö mánudagskvöld, ég mana ykkur í að horfa á þetta. Mjög fróðlegir og skemmtilegir þættir.

En núna... Natti natt *smúss*
Ester pester


Ester ritar@ þriðjudagur, júní 27, 2006

|


föstudagur, maí 19, 2006



NEI HÆ !

Ég viðurkenni að það er svoldið langt síðan síðast. Hvað um það að þá er ég enþá að bíða eftir einkunum úr prófunum... Veit ekki hvort ég er spennt eða kvíðin. Kannski er mér bara sama. Alla vega þá er alltaf nóg að gera. Er búin að vera mikið á fundum og námskeiðum í vinnunni undanfarið og svo bauð ég mig víst fram í ritnefnd starfsmannafélagsins og í kvöld þyrfti ég að mæta í diskó-keilu í kvöld til að geta skellt einhverri vitleysu á miðilinn okkar.

Oft er maður í vafa hvað maður á að skrifa hérna. Nú væri til dæmis við hæfi að ræða Eurovison keppnina og/eða Silvíu Nótt, en ég ætla ekki að gera það. Aftur á móti langar mig til að nefna afmælistónleika Bubba 06.06.06. Ég var of sein að panta miða í stúku :-( veit ekki hvort ég meika að vera í stæði. Var í stúku á White Stripes tónleikunum og leist ekkert á alla þvöguna sem ég horfði á fyrir neðan pallana. Ég yrði nú fyrir vonbrigðum ef Bubbi næði ekki að toppa fjöldann á þeim tónleikum.

En helgi fram undan. Mikið vona ég að hún verði ánægjuleg.
Lífið leikur ekki við alla.

Retse


Ester ritar@ föstudagur, maí 19, 2006

|


sunnudagur, apríl 23, 2006



Ákvörðun tekin...

Í dag tók ég þá ákvörðun að ég ætla ekki að taka þau 2 próf sem ég á eftir í III hluta verðbréfanámsins þetta vorið. Ákvörðunin er tekin á þeim grundvelli að ég hef ekki lagst nógu gaumgæfilega yfir þetta efni til þess að treysa mér til að ná 7 eða hærra í einkun eins og til þarf... og svo þarf ég hvort eð er að taka próf í lögfræðinni í haust svo ég gæti ekki útskrifast núna í vor. Það er útskrifað einu sinni á ári svo stefnan er að gefa sér betri tíma í þessa útreikninga og klára þetta vorið 2007. Hef loksins náð að sætta mig við ágæti þessarar ákvörðunar.

Annað sem ég gleymdi að segja ykkur frá í gær var að ég gerði mér ferð í Borgarnesið til þess að skoða nýja útlit útibúa KB-Banka. Borgarnes var s.s. fyrst í röðinni og er útibúið mitt næst og ég verð nú bara að segja að ég er nokkuð spennt fyrir þessu. Alla vega finnst mér þetta mjög flott en á auðvitað eftir að koma í ljós hvernig þetta kemur til með að ganga upp.

Ég ætla að athuga hvort ég geti eitthvað aðstoðað Haukinn minn í lestrinum... því að sjálfsögðu fer hann í prófin.

Ble ble... EM


Ester ritar@ sunnudagur, apríl 23, 2006

|


laugardagur, apríl 22, 2006



Blogg dagsins

Ég ætla að byrja á slæmu fréttunum. Þannig er mál með vexti að hún systir mín var lögð inná spítala í Alingsås á miðvikudaginn var. Í ljós kom að hún er með heilahimnubólgu. Enn er verið að rannsaka hana til að útiloka að hún sé með "bakteríu-týpuna" af sjúkdómnum, en allt bendir til þess að hún sé með vírusinn sem er víst öllu betra. Fóstrið á ekki að skaðast ef svo er því hún er komin það langt á leið. En alla vega var hún flutt á annað sjúkrahús sem er í Borås og er með sérstaka deild fyrir heilahimnubólgu-sjúklinga og einnig mjög góða fæðinga/meðgöngudeild, svo hún er vonandi í góðum höndum stelpan. Ég talaði við hana síðast um hádegið í dag og henni leið bara alveg sæmilega vel. Þeir voru allir feðgarnir á leiðinni í heimsókn til hennar og var haldin smá afmælisveisla fyrir strákana Ívar Loga og Sindra á spítalanum, en þeir eru 11 og 7 ára í dag bræðurnir. Til hamingju með það strákar mínir :-)

Annað er að bróðir minn er staddur í Barcelona... ég átti símtal við hann bæði í nótt og svo um kvöldmatarleitið áðan og hann er að skemmta sér alveg konunglega og fór fram á það að um leið og hann kæmi heim mundum við bóka ferð þangað saman því þetta væri algjör paradís. Ég er meira en til í það!

Nú eru tvö próf búin og tvö eftir.
Ég hef ekki verið að standa mig eins og ég vildi í próflestri og ætli útkoman verði ekki samkvæmt því. En það kemur allt í ljós. Erfiðustu prófin eru eftir svo nú fara næstu dagar í það að liggja yfir skuldabréfa og afleiðu útreikningum. Frábært!
En allt verður þetta að baki kl: 20:00 27. apríl nk.
Mikið hlakka ég til.

Ein staðreynd um mig í lokin:
Ég mundi aldrei þora að vera leigubílsstjóri.

Nóttin - Ester


Ester ritar@ laugardagur, apríl 22, 2006

|


þriðjudagur, apríl 18, 2006



Nú er sko vorið komi...

með öllum sínum kostum og GÖLLUM sem því fylgja.
Það var þannig að ég brá mér út á svalir í blíðunni. Hrindi eitt símtal og nældi mér svo í bjór sem fyrir einhverja undarlega tilviljun var á svölunum hjá mér (úps Kidda... ég er að drekka bjórinn þinn) til að slaka á eftir 4 tíma langt próf sem ég hef nýlokið við að þreyta í lögum og reglum á fjármagnsmarkaði. Sem sagt... þá hafði ég nýlokið símtalinu og var að virða fyrir þetta annars ágæta útsýni sem ég hef hér í Gnoðarvoginum þá ræðst að mér þessi risastóra ófreskja !!! Í skelfingu minni ræðst ég á svalahurðina, ríf hana upp, stekk inn með tilheyrandi látum og hálshnykkjum. Aumingja Haukur vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar ég brussaðist nánast í gegn um hurðina eins nett og ég get nú verið og skellti henni aftur með ópum.
Já... þetta var hnefastór hunangsfluga, loðin, svört og gul!

Já... það skal ég segja ykkur að vorið er greinilega komið með öllum sínum kostum og göllum.


Blessir... hræddster.


Ester ritar@ þriðjudagur, apríl 18, 2006

|


Ég

Ester Magnúsdóttir

Aðrir bloggarar

Brynja

Dagný

Elísabet mín

Fanney

Haukur

Guðrún Ásta

Hrafnhildur

KB Agnes

KB Ingó

KB Kristín

KB Linda

SigRey

Ingvar

ARCHIVES

október 2005 l nóvember 2005 l janúar 2006 l febrúar 2006 l apríl 2006 l maí 2006 l júní 2006 l júlí 2006 l

Aðrir linkar

Vinnan mín

Saumaklúbburinn Kiddi

Torfi Lárus

Myndasíðan

Tjáið ykkur!